3. flokkur stúlkna í bikarúrslit

Almennt

Stúlkurnar okkar í þriðja flokki gerðu góða ferð í Mosfellsbæ um helgina þar sem bikarmót í öðrum, þriðja og fjórða flokki fór fram. Þær gerðu sér lítið fyrir og unnu alla sína leiki 2 – 0 og komust þar með í úrslit. Bikarúrslitin fara fram í Digranesi í Kópavogi þann 11. mars þar sem þær munu spila við Hugin/Leikni. Við óskum þessum efnilegu blakstúlkum innilega til hamingju með flottan árangur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is