Blakið byrjar með trompi

Almennt

KA menn og konur, nú hefst blaktímabilið!
Konurnar okkar ríða á vaðið á laugardaginn þegar þær mæta Þrótti frá Neskaupstað klukkan 13:45 og strax að þeim leik loknum mætast karlalið sömu liða og er gert ráð fyrir að sá leikur hefjist um klukkan 16. Daginn eftir mætast konurnar aftur og það klukkan 13.
Leikir þessarra liða hafa oft verið gríðarlega spennandi og verða þessir engin undantekning!
Nokkrir nýjir leikmenn hafa gengið í raðir KA þetta tímabilið og verður þeirra frumraun um helgina.
Ykkar stuðningur er gríðarlega mikilvægur - sjáumst í stúkunni!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is