Eins marks sigur KA/Þór gegn ÍR

Almennt

KA/Þór vann eins marks sigur gegn ÍR á sunnudaginn í Austurbergi. 

Það var búist við hörkuleik þegar að KA/Þór og ÍR leiddu saman hesta sína í Austurbergi á sunnudaginn var í einum af toppleikjum Grill66-deildar kvenna í handknattleik. KA/Þór voru fyrir leikinn með fullt hús stiga, en ÍR hafði aðeins tapað einu stigi, þegar þær gerðu jafntefli við FH.

ÍR var töluvert sterkari aðilinn framan af en KA/Þór óx ásmegin þegar leið á leikinn. Þegar 25 sekúndur voru eftir af leiknum var KA/Þór með boltann og með eins marks forystu. Eftir leikhlé KA/Þór fór sóknin af stað. Ásdís Sigurðardóttir fór í gegn en markvörður ÍR-inga sá við henni. Í kjölfarið tók Ásdís frákastið en lína var dæmd. Ásdís var of snögg á sér og kastaði boltanum frá sér en reglurnar kveða á um að slíku broti undir lok leikja skuli refsa með vítakasti og rauðu spjaldi. Það varð niðurstaðan og fengu ÍR-ingar víti þegar 10 sekúndur voru eftir. Norðanstúlkan í liði ÍR, Hildur Marín Andrésdóttir, fór á punktinn en Sunna Guðrún Pétursdóttir, markvörður KA/Þór sá við henni og lokatölur 30-29 fyrir KA/Þór.

Mörk KA/Þór: Martha Hermannsdóttir 7, Ásdís Guðmundsdóttir 6, Ásdís Sigurðardóttir 5, Katrín Vilhjálmsdóttir 3, Aldís Ásta Heimisdóttir 2, Hulda Bryndís Tryggvadóttir 2, Ólöf Marín Hlynsdóttir 2, Steinunn Guðjónsdóttir 2 og Kolbrún María Bragadóttir 1 mark.
Margrét Einarsdóttir varði 6 skot í markinu hjá KA/Þór þar af eitt víti. Sunna Guðrún Pétursdóttir varði 7 skot og sömuleiðis eitt vítakast.

KA/Þór er því með 8 stig eftir fjóra leiki, en þær verma þó ekki toppsætið þar sem þær eiga leik til góða á HK sem er með 9 stig eftir 5 leiki. Næsti leikur stelpnanna er laugardaginn 4. nóvember gegn Aftureldingu hér á heimavelli. 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is