Jólahlaðborð KA - Ótrúlegt miðaverð - Frábær skemmtun

Almennt

Jólahlaðborð KA hefur ekki verið haldið í langan tíma. Félagið var löngum þekkt fyrir frábærar jólaskemmtanir. Nú á að endurvekja jólahlaðborð KA og fer það fram 15. desember í KA-heimilinu. Miðaverðinu hefur verið stillt í algjört hóf og er von á frábærum mat og enn betri skemmtun. 

Hægt er að bóka miða hjá Siguróla í gegnum netfangið siguroli@ka.is - miðinn kostar aðeins 5000kr

Matseðilinn má sjá hér en hann er vægast sagt glæsilegur:

 

Síld í tandoori-mangó á rúgbrauði

Grafinn lax og dillsósa á baquette

Hráskinka og melóna á baquette

Sveitapaté með bláberja-balsamic

Tvíreykt hangikjöt

Þurrkaður léttreyktur nautavöðvi

Bleikja í soja og sesam

~0~

Hangikjöt

Hamborgahryggur, með karamellu og dijon

Kalkúnabringa, bökuð í salvíu-smjöri

Purusteik, brakandi stökk

Önd teriyaki, á sætum kartöflum

Sykurbrúnaðar kartöflur og perur, kartöflu uppstúfur grænar baunir, gular baunir, rauðkál, eplasalat, laufabrauð, rauðvínssoðsósa

Lambhagasalat með kirsuberjatómötum, mozarella, trönuberjum, fræjum og kryddolíu

~0~

Súkkulaðikaka með karamellusósu, rjóma og jarðarberjum


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is