KA vann Stjörnuna í oddahrinu

Almennt | Blak
KA vann Stjörnuna í oddahrinu
Filip klárar vel í leiknum í gær

KA vann Stjörnuna í gærkveldi í hörkuleik í undanúrslitum Íslandsmótsins í blaki.  Staðan í einvíginu er 1-1 og því verður spilað til þrautar í Ásgarði á miðvikudaginn.

Leikurinn í gær var spennandi og skiptust liðin á að vinna hrinurnar.  KA vann fyrstu lotuna 25-20, Stjarnan tók þá næstu 25-17.  Þriðju lotuna tók KA 27-17 og Stjarnan svaraði því með því að vinna fjórðu lotuna 25-20.  Að lokum varð það Ævarr sem tryggði okkar mönnum sigur í oddahrinu 15-13.

Gaman var að sjá marga og hávaðasama stuðningsmenn á svæðinu og vonandi mæta sem flestir til að styðja strákana til sigurs á miðvikudagskvöld í Garðabænum og hjálpa okkar mönnum þannig að komast í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn á móti HK. 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is