Sæþór Olgeirsson í KA

Almennt | Fótbolti
Sæþór Olgeirsson í KA
Sæþór kominn í gult

Sæþór Olgeirsson skrifaði rétt í þessu undir 2 ára samning við KA eða út árið 2019.  Sæþór er 19 ára sóknarmaður sem kemur frá Völsungi en hann fór hreinlega á kostum í sumar og var langmarkahæstur í 2. deildinni  er hann skoraði 23 mörk í 21 leik.

Þó nokkur félög voru á eftir Sæþóri enda spennandi leikmaður þar á ferð en Sæþór ákvað að taka slaginn með KA og verður gaman að fylgjast með honum í Pepsi-deildinni næsta sumar.  Sæþór er kraftmikill markaskorari sem KA bindur miklar vonir við í framtíðinni.  


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is