Jóna Margrét valin í U17 landsliðið

Blak

U17 stúlknalandslið Íslands heldur til Tékklands í byrjun janúar þar sem þær mæta liðum Tékklands, Spánar og Slóveníu í C-riðli undankeppni Evrópumótsins. Þjálfarar liðsins, Daniele Mario Capriotti og Erla Bjarný Jónsdóttir tilkynntu á dögunum hvaða leikmenn skipa lið Íslands og í hópnum er ein stúlka frá KA, hún Jóna Margrét Arnarsdóttir. 

Liðið er skipað eftirfarandi leikmönnum:

Arna Sólrún Heimisdóttir – HK
Arney Kjartansdóttir – Völsungur
Daníela Grétarsdóttir – Afturelding
Ester Rún Jónsdóttir – Þróttur Nes
Eyrún Arna Ingólfsdóttir – Þróttur Nes
Hekla Hrafnsdóttir – Þróttur Reykjavík
Jóna Margrét Arnarsdóttir – KA
Katla Hrafnsdóttir – Þróttur Reykjavík
Katla Vigdís Vernharðsdóttir – Vestri
Líney Inga Guðmundsdóttir – HK
Sóldís Björt Leifsdóttir Blöndal – Vestri
Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir – HK


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is