Frítt á Fram-leikinn á laugardaginn allir fá gos og pylsur

Handbolti

Það er svo sannarlega hægt að tala um algjöran úrslitaleik þar sem allt er undir þegar Akureyri tekur á móti Fram í Olís deildinni á laugardaginn. Liðin sitja í tveim neðstu sætum deildarinnar og aðeins eitt stig sem skilur liðin að. Hafi einhverntíma verið nauðsynlegt að stuðningsmenn liðsins komi og taki þátt í baráttunni þá er það einmitt núna.

Frítt á leikinn – gos og pylsur í boði fyrir áhorfendur

Þar sem þetta er síðasti heimaleikur Akureyrar í Olís deildinni á þessu tímabili verður frítt inn á leikinn fyrir alla sem vilja og þar að auki verður boðið upp á gos og pylsur á meðan birgðir endast.

Akureyri og Fram hafa mæst tvisvar í deildinni í vetur, fyrri leikurinn sem var heimaleikur Fram var æsispennandi þar sem Fram vann að lokum eins marks sigur. Seinni leikurinn var í desember hér fyrir norðan og óhætt að segja að afleit byrjun leiksins hafi gert útaf við vonir Akureyrarliðsins um að hefna fyrir fyrsta leikinn og lauk leiknum með öruggum sigri Fram. Nú fær liðið annað tækifæri til að takast á við Fram og það er næsta víst að heimamenn ætla ekki að brenna sig á sama soðinu aftur.

Við heitum því á alla sem vettlingi geta valdið til að troðfylla KA heimilið og styðja strákana með öllum tiltækum ráðum, það kostar sem sé ekkert inn á leikinn og hressandi pylsa og gos til að gefa mönnum orku í átökin.

Leikurinn hefst klukkan 16:00 á laugardaginn og um að gera að mæta tímanlega.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is