Jovan Kukobat hjá KA næstu 2 ár

Handbolti
Jovan Kukobat hjá KA næstu 2 ár
Jovan og Haddur ánægðir með nýjan samning

Markvörðurinn Jovan Kukobat skrifaði í morgun undir nýjan samning við handknattleiksdeild KA. Samningurinn er til tveggja ára en Jovan hefur verið í lykilhlutverki hjá KA í vetur sem er að hefja úrslitaeinvígi gegn HK um laust sæti í Olís deildinni að ári.

Mikil ánægja ríkir hjá félaginu með að halda Jovan áfram enda er hann öflugur markvörður sem hefur komið mjög vel inn í hópinn hjá KA. Við ætlumst til mikils af Jovan áfram og bíðum spennt eftir því að sjá hvernig liðið kemur til leiks á morgun í fyrsta leik gegn HK.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is