KA/Þór örugglega áfram í bikarnum

Handbolti

KA/Þór tók í gærkvöldi á móti liði FH í sextán liða úrslitum Coca Cola bikar kvenna. KA/Þór náði fljótt undirtökunum í leiknum og leiddu lengst af með þrem til fjórum mörkum. Liðið hikstaði þó undir lok hálfleiksins og náði FH liðið að minnka muninn í eitt mark, staðan 15-14 í hálfleik.

Um miðjan seinni hálfleikinn höfðu heimastúlkur náð sex marka forskoti, 26-20. Þá tók við ótrúlegur kafli þar sem KA/Þór skoraði átta mörk í röð og náðu fjórtán marka forystu. Bæði lið bættu við þremur mörkum það sem eftir var þannig að lokatölur urðu 37-23 og KA/Þór komið í átta liða úrslit bikarkeppninnar.

Martha Hermannsdóttir átti sannkallaðan stórleik, 14 mörk og fór fyrir sínu liði sem eins og tölurnar bera með sér átti hreint frábæran seinni hálfleik jafnt í sókn sem vörn.

Mörk KA/Þór: Martha Hermannsdóttir 14 (7 úr vítum), Katrín Vilhjálmsdóttir 7, Ásdís Guðmundsdóttir 6, Hulda Bryndís Tryggvadóttir 3, Aldís Ásta Heimisdóttir 2, Auður Brynja Sölvadóttir 2, Ólöf Marín Hlynsdóttir 2 og Þóra Stefánsdóttir 1.

Mörk FH: Diljá Sigurðardóttir 7, Ingibjörg Pálmadóttir 5, Aþena Ríkharðsdóttir 4, Hildur Guðjónsdóttir 2, Sylvía Björt Blöndal 2, Arndís Sara Þórsdóttir, Birna Íris Helgadóttir og Jenný Fjóla Ólafsdóttir 1 mark hver.

Nú er bara að bíða og sjá hverjir verða andstæðingarnir í átta liða úrslitunum. Næsti leikur KA/Þór í deildarkeppninni er útileikur gegn Víkingum laugardaginn 18. nóvember.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is