Löng handboltahelgi framundan | Meistaraflokkarnir spila heimaleiki

Handbolti

Stór handboltahelgi er framundan í KA-heimilinu og hefst hún strax í kvöld með leik KA og Þór í 3. fl karla kl. 21:15. Síðan á fimmtudagskvöldið kl. 19:00 þegar að KA mætir Hvíta Riddaranum í KA-heimilinu í Grill66 deild karla.. Hvíti Riddarinn er neðsta liðið í deildinni en munu eflaust mæta hungraðir til þess að sækja stig af KA-mönnum. Með liði Hvíta Riddarans leikur fyrrum leikmaður KA (Reyndar í fótbolta) Atli Sveinn Þórarinsson

Á föstudaginn kl. 17:30 spilar svo KA/Þór gegn Víking í KA-heimilinu og mikilvæg stig sem liðið gæti nælt sér í þar með sigri.

3. fl karla B fer svo suður yfir heiðar  á meðan A-liðið spilar gegn FH á sunnudaginn kl. 15:00

Loks leikur 3. og 4. fl kvenna heimaleiki gegn Víkingum í KA-heimilinu og eru þeir sem hér segir:

Laugardagur 16:30 3. fl kvenna B
Laugardagur 18:15 4. fl kvenna eldri
Sunnudagur 12:30 4. fl kvenna eldri
Sunnudagur 13:45 3. fl kvenna B

 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is