Æfingatafla Júdódeildar 2018-2019

Júdó

Júdódeild KA hefur vetraræfingar sínar mánudaginn 3. september næstkomandi en allar æfingar deildarinnar fara fram í íþróttahúsinu við Laugagötu. Mikill kraftur er í júdóstarfinu og er spennandi vetur framundan. 

Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að prófa júdó að koma og prófa en að sjálfsögðu er frítt að prófa og eru prufugallar á staðnum fyrir nýliða. Adam Brands Þórarinsson er yfirþjálfari og er hægt að ná í hann í síma 863-4928 fyrir frekari upplýsingar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is