Stórskemmtilegt Íslandsmót 11-14 ára, KA með helming allra gullverðlauna.

Júdó
Íslandsmót 11-14 ára fór fram í KA-heimilinu á Akureyri í gær. Keppendur voru frá 6 félögum og var keppt í bæði einstaklings-og liðakeppni.  KA krakkar stóðu sig afar vel og unnu til 9 gullverðlauna, næstir komu vinir okkar í JR með 4 gull en önnur félög með minna.  Í liðakeppni 11-12 ára sigraði KA, en í liðakeppni 13-14 ára sigraði JR.
Í flokki 11-12 ára átti KA 12 keppendur, árangur þeirra varð eftirfarandi:

Berenika Bernat:  Gull í -40kg. flokki stúlkna.
Alexander Heiðarsson:  Gull í -30kg. flokki drengja, annað árið í röð.
Hinrik Guðjónsson: Silfur í -30kg. flokki drengja.
Eyþór Ernir Pálsson: Gull í -34kg. flokki drengja.
Emil Örn Birnisson: Silfur í -34kg. flokki drengja.
Ragnar Þór Eiríksson: Silfur í -38kg. flokki drengja.
Birgir Arngrímsson: Gull í -42kg. flokki drengja.
Oddur Hrafnkell Daníelsson: Brons í -46kg. flokki drengja.
Kristófer Breki Snæbjörnsson: Silfur í -50kg. flokki drengja.
Nikulás Þór Þorsteinsson: Gull í -55kg. flokki drengja.
Davíð Matthíasson: Gull í -66kg. flokki drengja.
Jóel Örn Óskarsson: Silfur í -73kg. flokki drengja.

Liðakeppnin var gríðarlega spennandi.  KA og JR kepptu til úrslita.  Þegar ein glíma var eftir var staðan jöfn 2-2 en KA sigraði síðustu glímuna og varð því Íslandsmeistari í aldursflokki 11-12 ára.
Sveit KA var skipuð eftirtöldum:
Alexander Heiðarsson, Hinrik Guðjónsson, Eyþór Ernir Pálsson, Ragnar Þór Eiríksson, Oddur Hrafnkell Daníelsson, Davíð Matthíasson og Jóel Örn Óskarsson.

Í flokki 13-14 ára átti KA 5 keppendur, árangur þeirra varð eftirfarandi:

Baldur Bergsveinsson: Gull í -50kg. flokki pilta.
Skafti Hannesson: Silfur í -60 kg. flokki pilta.
Guðmundur Daníelsson: Gull í -73kg. flokki pilta.
Atli Rúnar Arason: 5. sæti í -73kg. flokki pilta.
Hilmar Jórunnarson: Gull í +90kg. flokki pilta.

Í liðakeppninni voru JR-ingar einráðir og sigruðu.  KA vantaði létta keppendur til að manna léttustu flokkana og náðu því ekki að manna sveit, strákarnir eru bara orðnir svo stórir og kraftalegir.

Skipting verðlauna á mótinu varð eftirfarandi (gull-silfur-brons):
1. KA 9 5 2
2. JR 4 6 4
3. UMFN 2 5 2
4. JDÁ 1 1 0
4. UMFÞ 1 1 0
6. UMFS 1 0 3


































Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is