Vormót fullorðinna í júdó í KA-Heimilinu á laugardaginn

Júdó

Vormót Júdósamband Íslands í flokki fullorðinna verður haldið næsta laugardag í KA-Heimilinu. Mótið hefst klukkan 10:00 og mótslok áætluð uppúr hádegi. Frítt verður inn og er íþróttaáhugafólk hvatt til að mæta enda er orðið langt síðan júdómót hefur verið haldið í KA-Heimilinu.

Á næsta ári vonast Júdódeild KA til þess að geta haldið fjölmennt mót á vegum JSÍ fyrir 21 árs og yngri þar sem keppt verður á tveim til þrem völlum. Vonumst til að sjá sem flesta.

Fyrir þá sem ekki komast á mótið þá verður það í þráðbeinni á KA-TV.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is