2. fl. Bikarslagur Vals og Akureyrar í beinni á Akureyri TV

Handbolti

Valur og Akureyri mætast í undanúrslitum bikarkeppni 2. flokks karla í Valsheimilinu í dag klukkan 17:40 og má búast við hörkuleik enda sæti í sjálfum úrslitaleiknum í Laugardalshöllinni í húfi. Þó nokkur hasar hefur verið á milli félaganna út af heimaleikjaréttinum á þessum leik og verður ekki farið nánar út í það hér.

Akureyri-TV mun sýna leikinn beint þannig að þið sem ómögulega komist á leikinn getið fylgst vel með á heimasíðunni eða SMELLT HÉR TIL AÐ HORFA Á LEIKINN!

Á leið sinni í undanúrslitin sigraði Akureyrarliðið Aftureldingu 29-28 og síðan HK í átta liða úrslitunum 28-25.
Valur sat hjá í fyrstu umferð en komust í undanúrslitin með því að vinna lið KR, 15-30.

Við sendum Akureyrarstrákunum baráttukveðjur í leikinn enda til mikils að vinna, úrslitaleikur bikarkeppninnar er í húfi.

Með handboltakveðju
Leikmenn og stjórn Akureyrar Handboltafélags.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband