Flýtilyklar
Ásgeir Sigurgeirsson semur viđ KA til tveggja ára
Ţćr fréttir bárust KA mönnum í dag ađ sóknarmađurinn ungi og efnilegi Ásgeir Sigurgeirsson hefđi gert tveggja ára samning viđ félagiđ. Ásgeir var á láni frá Stabćk síđasta sumar og sló heldur betur í gegn og vann bćđi hug og hjörtu stuđningsmanna liđsins.
Ásgeir tók ţátt í 17 af 22 deildarleikjum KA og skorađi í ţeim átta mörk, ţar á međal markiđ mikilvćga gegn Selfossi á heimavelli sem tryggđi KA sćti í Pepsi-deildinni. Ásgeir lék mest á hćgri kanti KA-manna en hann getur einnig leikiđ ađrar stöđur fremst á vellinum.
Ásgeir er 20 ára gamall og lék upp yngri flokka međ Völsungi á Húsavík áđur en hann var keyptur til Stabćk. Hjá Stabćk varđ hann fyrir meiđslum sem urđu til ţess ađ hann kom á láni til KA ţar sem hann fékk sig góđan af meiđslunum og spilađi vel í sumar. Nú hefur KA náđ samkomulagi viđ Stabćk um kaup á Ásgeiri og hefur Ásgeir skrifađ undir tveggja ára samning.
KA-menn hlakka til ađ fylgjast međ Ásgeiri í deild ţeirra bestu á nćsta ári en hann var bćđi valinn efnilegasti leikmađurinn af KA á sigurhátíđ félagsins, sem og í uppgjöri Fótbolta.net á Inkassodeildinni í sumar.