Átta fótboltamenn valdir á Laugarvatn

Fótbolti
Átta fótboltamenn valdir á Laugarvatn
Við áttum flotta fulltrúa úr Íslandsmeistaraliðinu

Það voru átta ungmenni fædd 2001 valin á Laugarvatn núna í ágúst.

Hildur Marín Bjarnadóttir og Karen María Sigurgeirsdóttir voru valdar hjá stúlkunum og fóru þær um miðjan mánuðinn.

Birgir Baldvinsson, Ingólfur Birnir Þórarinsson, Ottó Björn Óðinsson, Sveinn Margeir Hauksson Þorsteinn Már Þorvaldsson voru valdir hjá drengjunum. Ingólfur var meiddur þegar æfingarnar fóru fram um síðustu helgi og í hans stað fór Eyþór Ernir Pálsson.

KA-krakkarnir áttu það öll sameiginlegt að standa sig vel en fyrirkomulagið hjá stelpunum og strákunum var sambærilegt. Það var skipt í fjögur lið og tekið mót þar sem hvert lið spilaði einn leik á dag, föstudag til sunnudags ásamt því að það var einnig æfing á laugardeginum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband