Friðfinnur Hermannsson er fallinn frá

Almennt
Friðfinnur Hermannsson er fallinn frá
Freddi ásamt bræðrum sínum.Hann er annar frá hægri

Friðfinnur Hermannsson, eða Freddi eins og hann var oft kallaður, lést í gærmorgun eftir erfiða baráttu við krabbamein.

Friðfinnur  var leikmaður meistaraflokks karla í fótbolta til margra ára. Friðfinnur var vinsæll í hóp og einstaklega skemmtilegur liðsfélagi. Hann er af mikilli KA fjölskyldu en bæði hann, bræður hans og foreldrar voru og eru alltaf boðin og búin til þess að hjálpa KA ef til þarf.

Við leikslok þakkar KA Fredda samveruna á liðnum áratugum og sendir fjölskyldu og ástvinum hans sínar dýpstu samúðarkveðjur


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband