KA Podcastið - 17. maí 2018

Almennt | Fótbolti | Handbolti

Hlaðvarpsþáttur KA, KA Podcastið, heldur áfram göngu sinni en að þessu sinni fara þeir Siguróli Magni Sigurðsson og Birkir Örn Pétursson yfir lokahófið í handboltanum, stöðuna í fótboltanum ásamt því að þeir rýna í félagsfund KA sem fór fram í gær.

Halldór Jón Sigurðsson, Donni, þjálfari Þórs/KA mætir í heimsókn og fer yfir hin ýmsu mál tengd kvennaliðinu sem og karlaliði KA þannig að það er um að gera að hlusta á þátt vikunnar.

Þá minnum við á að þátturinn er aðgengilegur í iTunes fyrir þá sem vilja hlusta á þáttinn þar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband