Stórleikur hjá Ţór/KA á mánudag

Fótbolti
Stórleikur hjá Ţór/KA á mánudag
Stelpurnar eru klárar í slaginn (mynd Ţórir Tr.)

Kvennaliđ Ţórs/KA á stórleik á morgun, mánudag, ţegar ríkjandi Íslandsmeistarar Stjörnunnar koma í heimsókn á Ţórsvöll en leikurinn hefst klukkan 17:30.

Okkar stelpur eru á toppi deildarinnar međ 5 stiga forskot á Breiđablik ţegar ađeins ţrír leikir eru eftir. Ţađ er ţví gríđarlega mikiđ undir í leiknum en sigur myndi fara langleiđina međ ađ tryggja Íslandsmeistaratitilinn en á sama tíma bíđur Breiđablik átekta og reynir ađ minnka forskotiđ.

Reyndar gćti ţađ gerst ađ stelpurnar tryggđu sér Íslandsmeistaratitilinn en ef sigur vinnst á Stjörnunni og Breiđablik nćr ekki ađ vinna sinn leik ţá verđur forskotiđ á toppnum of stórt.

Ţór/KA vann fyrri leik liđanna í deildinni í Garđabćnum 1-3 ţar sem Agla María Albertsdóttir kom Stjörnunni yfir strax á 3. mínútu en Sandra Mayor, Natalia Gomez og Hulda Ósk Jónsdóttir svöruđu fyrir Ţór/KA og sterkur sigur stađreynd.

Viđ hvetjum ađ sjálfsögđu alla til ađ mćta og styđja stelpurnar til sigurs, ţetta er einfaldlega stćrsti leikur sumarsins og algjörlega ljóst ađ stelpurnar eiga okkar stuđning skilinn fyrir frábćrt sumar til ţessa, nú ţarf bara ađ klára dćmiđ og leikurinn á morgun er risahluti af ţví, áfram Ţór/KA!

 FÉLAGLUJTMÖRKNETSTIG
1 Ţór/KA 15 12 2 1 37  -  12 25 38
2 Breiđablik 15 11 0 4 38  -  10 28 33
3 Valur 15 10 1 4 37  -  16 21 31
4 ÍBV 15 9 4 2 31  -  16 15 31
5 Stjarnan 15 9 3 3 35  -  14 21 30
6 FH 15 6 1 8 15  -  22 -7 19
7 Grindavík 15 4 2 9 13  -  38 -25 14
8 KR 15 4 0 11 12  -  34 -22 12
9 Fylkir 15 2 2 11 12  -  32 -20 8
10 Haukar 15 0 1 14 10  -  46 -36 1

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband