Áframhaldandi samstarf í kvennahandboltanum

Handbolti
Áframhaldandi samstarf í kvennahandboltanum
Stelpurnar ætla sér stóra hluti á komandi vetri

Áframhald verður á samstarfi KA og Þórs um sameiginlegt kvennalið í handboltanum undir nafninu KA/Þór. Búið er að gera samning við alla leikmenn liðsins fyrir utan að Erla Hleiður Tryggvadóttir leggur skóna á hilluna. Þá verða þeir Jónatan Magnússon og Þorvaldur Þorvaldsson áfram þjálfarar liðsins.

Þetta eru frábærar fréttir enda náði liðið góðum árangri á nýliðnu tímabili en liðið endaði í 2. sæti 1. deildar með jafn mörg stig og Fjölnir sem varð Deildarmeistari. Þá komst liðið í úrslit umspilsins um laust sæti í efstu deild en tapaði þar gegn Selfyssingum.

Nú þegar búið er að tryggja áframhaldandi veru núverandi leikmanna liðsins hyggur liðið á styrkingu og verður mjög gaman að fylgjast með stelpunum á komandi tímabili, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband