Dýrmćtur útisigur KA gegn HK í toppbaráttunni

Handbolti
Dýrmćtur útisigur KA gegn HK í toppbaráttunni
Stefán Árnason messar yfir hópnum í leikhléi

KA liđiđ mćtti í Kópavoginn á föstudagskvöldiđ í mikilvćgan útileik gegn HK sem sat í 2. sćti Grill 66 deildarinnar. KA kom til leiks án tveggja lykilmanna en skyttan Áki Egilsnes var veikur og Hreinn Ţór Hauksson meiddur og munađi um minna.

Jóhann Einarsson skorađi fyrsta mark leiksins en heimamenn í HK svöruđu međ nćstu ţrem. Dagur Gautason og Jóhann sáu um ađ jafna í 3-3 og skömmu síđar náđi KA forystunni á ný og hélt í kjölfariđ tveggja til ţriggja marka forskoti.

Jóhann Einarsson skorađi ţrjú mörk í leiknum

Eftir tuttugu mínútna leik, ţegar stađan var 8-9 kom frábćr kafli sem skilađi fimm KA mörkum í röđ og sex marka forskot stađreynd, 8-14. Bćđi liđ bćttu viđ einu marki fyrir hálfleik ţannig ađ KA leiddi 9-15.

Jovan Kukobat var hreint frábćr í fyrri hálfleiknum, 11 varin skot og ţar á međal vítakast. HK menn spiluđu mestallan fyrri hálfleikinn međ aukamann í sókninni en ţađ reyndist ţeim dýrkeypt, fengu á sig ţrjú mörk í autt markiđ. Sigţór Árni Heimisson skorađi fjögur mörk í fyrri hálfleiknum og stjórnađi sóknarleiknum af mikilli prýđi.

Tímalína fyrri hálfleiks

Fyrri hluta seinni hálfleiksins hélt KA fimm marka forskoti og um miđjan hálfleikinn var stađan 16-21. HK tók ţađ til bragđs ađ taka Sigţór Árna úr umferđ. Varnarleikur KA liđsins datt niđur og sömuleiđis markvarslan. Ţetta nýttu HK menn sér og međ fimm mörkum í röđ jöfnuđu ţeir leikinn í 21-21.

Sveiflan í leiknum heldur betur međ heimamönnum en Jón Heiđar Sigurđsson minnti ţá heldur betur á sig og KA náđi tveggja marka forskoti á ný. Ţađ sem eftir lifđi leiks var spennan gríđarleg, HK minnkađi muninn í eitt mark en KA svarađi jafnharđan međ marki á móti. Svo fór ađ lokum ađ KA vann eins marks sigur, 27-26 og svo sannarlega dýrmćt stig komin ţar í hús.

Í heildina má segja ađ fyrri hálfleikurinn hafi veriđ hreint frábćrlega leikinn en arfaslakur kafli í seinni hálfleiknum hleypti óţarfa spennu í leikinn.

Tímalína seinni hálfleiks

Mörk KA: Sigţór Árni Heimisson 7, Jón Heiđar Sigurđsson 5, Andri Snćr Stefánsson 4 (2 úr vítum), Jóhann Einarsson 3, Ólafur Jóhann Magnússon 3, Dagur Gautason 2, Sigţór Gunnar Jónsson 2, Dađi Jónsson 1 og Jovan Kukobat 1 mark.
Jovan Kukobat stóđ í markinu allan leikinn og varđi samtals 16 skot, eitt vítakast og skorađi jafnframt eitt mark.

Mörk HK: Elías Björgvin Sigurđsson 10, Kristófer Dagur Sigurđsson 4, Bjarki Finnbogason 3, Svavar Kári Grétarsson 3, Friđgeir Elí Jónasson 2, Kristján Ottó Hjálmsson 2, Egill Björgvinsson 1, Ingi Rafn Róbertsson 1, og Tryggvi Ţór Tryggvason 1 mark.

Eftir leikinn er KA áfram međ fullt hús eđa 16 stig eftir átta leiki og hefur fjögurra stiga forskot á HK og Akureyri en Akureyri á ţó leik til góđa.

Međfylgjandi ljósmyndir tók Ernir Eyjólfsson, en ţćr birtust á visir.is
Fleiri myndir Ernis er hćgt ađ skođa hér.

Leikurinn var í beinni útsendingin á KA-TV og hćgt ađ horfa á leikinn í spilaranum hér ađ neđan.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband