Fyrsta tap vetrarins raunin í Safamýri

Handbolti
Fyrsta tap vetrarins raunin í Safamýri
Herslumuninn vantaði í Safamýri (mynd: EBF)

KA sótti Framara heim í 3. umferð Olís deildar karla en fyrir leikinn var KA á toppi deildarinnar með fullt hús stiga, heimamenn í Fram voru hinsvegar með 1 stig eftir jafntefli gegn Val í fyrstu umferð. Báðum liðum var spáð botnbaráttu fyrir tímabilið og ljóst að gríðarlega mikilvæg stig væru í húfi.

Framarar byrjuðu leikinn ögn betur og leiddu fyrstu 20 mínúturnar en KA liðið var aldrei langt undan. Það vantaði smá aukakraft í varnarfærslur okkar liðs í upphafi og heimamenn nýttu sér það vel, fyrir vikið átti Jovan Kukobat í marki KA í erfiðleikum með að ná upp góðri vörslu.

En í stöðunni 8-7 fyrir Fram kom magnaður kafli hjá okkar liði, strákunum tókst að loka betur og í kjölfarið breyttist staðan yfir í 8-11 og útlitið gott fyrir hlé. Því miður þá tókst ekki að halda út og Framarar jöfnuðu metin í 12-12 rétt fyrir hálfleikinn og strákarnir því aftur á byrjunarreit.

Aftur voru það Framarar sem byrjuðu betur og er síðari hálfleikur var tæplega hálfnaður var staðan 18-14 og hafði sóknarleikur KA gengið ansi illa. Þá tók Stefán Árnason leikhlé sem virtist svínvirka því allt annað var að sjá strákana í kjölfarið. Vörnin small og sóknin fór að ganga betur, staðan var skyndilega orðin 18-19 og 10 mínútur eftir. Þarna fékk maður á tilfinninguna að strákarnir væru komnir með leikinn í sínar hendur.

Daði Jónsson fékk brottvísun sem heimamenn nýttu sér og komust í 20-19, þá fékk Áki Egilsnes brottvísun og enn nýttu Framarar sér liðsmuninn og allt í einu var staðan orðin 23-19 og leikurinn í raun tapaður. Á endanum fóru heimamenn með 26-21 sigur af hólmi og svekkelsið mikið í herbúðum KA.

Svekkjandi tap staðreynd en þó erfitt að segja annað en að það hafi vantað uppá spilamennskuna í dag. Vörn og markvarsla var ekki nægilega stöðug og þá gekk sóknarleikurinn erfiðlega. Bæði Jón Heiðar Sigurðsson og Sigþór Árni Heimisson leikstjórnendur voru fjarri góðu gamni og eðlilega datt sóknarleikurinn niður fyrir vikið.

Framarar færast með sigrinum nær okkur en staðan er áfram mjög góð hjá okkar liði enda strax komin 4 stig í hús eftir aðeins 3 leiki. Það er þó ljóst að strákarnir þurfa að sýna betri frammistöðu í næsta leik þegar Grótta kemur í heimsókn. Rétt eins og í Safamýrinni þá er leikurinn gegn Gróttu leikur milli liða sem spáð er botnbaráttu og gríðarlega mikilvægt að tapa ekki öðrum slíkum leik á stuttum tíma.

Mörk KA: Áki Egilsnes 6 mörk, Tarik Kasumovic 5, Sigþór Gunnar Jónsson 3, Heimir Örn Árnason 2, Allan Norðberg 2, Daníel Matthíasson 2 og Dagur Gautason 1.

Jovan Kukobat varði 10 skot í markinu.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband