Heimir Örn og Hreinn Þór spila með KA í vetur

Handbolti
Heimir Örn og Hreinn Þór spila með KA í vetur
Guli liturinn fer strákunum okkar vel

Heimir Örn Árnason og Hreinn Þór Hauksson hafi báðir komist að samkomulagi við KA að spila með liðinu í vetur í Grill66 deild karla. Þetta eru risatíðindi enda báðir gríðarlega góðir leikmenn, sem munu koma til með að styrkja liðið töluvert.

Þessa tvo kappa þarf vart að kynna fyrir lesendum en báðir hafa þeir leikið með KA á árum áður, sem og Hömrunum og Akureyri undanfarin ár. Heimir Örn getur leikið sem skytta og leikstjórnandi en Hreinn spilar meira í horni og á línu en þessir kappar eru einnig þekktir fyrir það að vera gríðarlega sterkir varnarmenn og hafa á löngum stundum bundið saman varnir þeirra liða sem þeir spila með.

KA fagnar því að þessir tveir leikmenn hafi ákveðið að aðstoða uppeldisfélag sitt á komandi leiktíð með því að spila með liðinu. Fyrsti leikur KA er gegn ÍBV U í Grill66 deild karla á morgun í KA-heimilinu. Leikurinn hefst 20:15 og verður enginn svikinn af því að koma og kíkja á þá gulu á nýjan leik. Mikið húllumhæ verður í kringum leikinn en KA mun bjóða upp á fríar pylsur ásamt hljómsveit sem mun leika í tjaldi fyrir utan KA-heimilið. Þá verður einnig hoppukastali fyrir börnin. 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband