Markvörđurinn Jovan Kukobat semur viđ KA

Handbolti
Markvörđurinn Jovan Kukobat semur viđ KA
Jovan var 11 sinnum mađur leiksins hjá Akureyri

Ţau tíđindi voru ađ berast ađ markvörđurinn frábćri, Jovan Kukobat sem lék međ Akureyri tímabilin 2012-13 og 2013-14 hafi gert eins árs samning viđ KA og leiki međ liđinu nćsta tímabil. Jovan hefur ekki veriđ ađgerđalaus frá ţví hann fór frá Akureyri en hefur leikiđ í heimalandinu, Serbíu og Ísrael frá ţví ađ hann fór frá Akureyri voriđ 2014.

Allir sem fylgdust međ Jovan Kukobat ţegar hann lék međ Akureyri vita ađ ţar er á ferđinni frábćr markvörđur og var einn besti mađur Akureyrarliđsins á ţessum tíma. Sjö sinnum var hann valinn mađur Akureyrarliđsins tímabiliđ 2013-14 og var jafnframt valinn besti varnarmađur liđsins í lok tímabilsins.

Jovan Kukobat er nú á 30. aldursári, sannkallađ jólabarn ţví hann er fćddur á jóladag 1987. Ţetta eru frábćr tíđindi og gríđarlegur styrkur fyrir leikmannahóp KA fyrir komandi tímabil. Jovan hlakkar mikiđ til ađ snúa aftur til Akureyrar og biđur fyrir kveđjur til gamalla vina og kunningja.

Smelltu á myndina hér ađ neđan til ađ rifja upp tölfrćđi og myndir frá tímabilunum tveim sem Jovan lék međ  Akureyri.


Jovan Kukobat fagnar einu sinni sem oftar góđri vörslu

Eftir fyrri dvöl sína á Akureyri lék Jovan međ serbneska liđinu HC Vojvodina. Á netinu fundum viđ vídeóklippur međ nokkrum vel völdum vörslum hjá Jovan frá tímabilinu 2014-2015.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband