Martha og Jonni best á hófi HSÍ

Handbolti
Martha og Jonni best á hófi HSÍ
Dagur og Martha bættu við bikurum í safnið í gær!

Lokahóf Handknattleikssambands Íslands fór fram í gær og var mikið um dýrðir. Að venju voru þeir leikmenn og þjálfarar sem þóttu standa uppúr verðlaunaðir og fór töluvert fyrir handknattleiksdeild KA á hófinu enda tryggðu bæði karlalið KA og kvennalið KA/Þórs sér sæti í deild þeirra bestu á nýliðinni leiktíð.

Martha Hermannsdóttir leikmaður KA/Þórs var valin besti leikmaður Grill 66 deildarinnar og Jónatan Magnússon var valinn besti þjálfarinn í deildinni en liðið varð Deildarmeistari án þess að tapa leik sem er auðvitað frábær árangur.

Martha var einnig valin besti varnarmaður deildarinnar og karlamegin var Heimir Örn Árnason valinn besti varnarmaðurinn, magnaður árangur hjá þeim hjónum!

Þá var Dagur Gautason valinn efnilegasti leikmaður Grill 66 deildar karla en Dagur sem er nýorðinn 18 ára lék lykilhlutverk í liði KA sem tryggði sig upp í deild þeirra bestu.

Við óskum okkar fólki til hamingju með verðlaunin og hlökkum mikið til að sjá liðin okkar á komandi tímabili.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband