Ótrúlegur stórsigur KA á Haukum

Handbolti
Ótrúlegur stórsigur KA á Haukum
Sigurgleđin var gríđarleg! (mynd: Ţórir Tryggva)

KA tók á móti Haukum í 2. umferđ Olís deildar karla í KA-Heimilinu í dag. Fyrirfram var reiknađ međ sigri gestanna en liđinu var spáđ Íslandsmeistaratitlinum fyrir tímabil á sama tíma og okkar liđi hefur veriđ spáđ neđsta sćtinu í deildinni. Spá er hinsvegar bara spá eins og kom svo sannarlega á daginn í dag.

Ţađ var ljóst strax frá upphafi ađ KA liđiđ var vel gírađ í leikinn og menn ćtluđu ađ selja sig ansi dýrt. Jón Heiđar Sigurđsson opnađi markareikninginn og strax í kjölfariđ varđi Jovan Kukobat algjört dauđafćri af línunni, ţađ var eitthvađ í loftinu.

KA hafđi frumkvćđiđ í upphafi en gestirnir voru aldrei langt undan. Hinsvegar ţegar fyrri hálfleikur var rétt rúmlega hálfnađur var KA komiđ međ gott tak á leiknum og leiddi 8-4. Forskotiđ hélst í 2-4 mörkum út hálfleikinn og KA liđiđ var ađ spila virkilega vel. Er flautađ var til hálfleiks leiddi KA 13-9 og einn af lykilţáttum í ţessari góđu stöđu var stórfengleg frammistađa Jovans í markinu.

Tímalína fyrri hálfleiks

Ţađ var ţví eđlilegt ađ menn vćru hrćddir um ađ gríđarlega sterkt liđ Hauka myndi koma međ áhlaup í síđari hálfleiknum og ađ markvarslan hjá Jovan myndi detta niđur er leiđ á leikinn. Atli Már Báruson minnkađi muninn í 13-10 en ţá skildu leiđir allsvakalega.

KA skorađi nćstu 6 mörk í leiknum og komst í 19-10, gestirnir voru sem rotađir og höfđu engin svör viđ frábćrum varnarleik KA sem og öguđum sóknarleik sem gaf vel af sér. Ţađ var í raun alveg sama hvađ Gunnar Magnússon ţjálfari Haukar reyndi ađ kokka upp, ţađ gekk ekkert hjá Hafnfirđingum ađ koma sér í leikinn.

Stórkostleg spilamennska KA hélt áfram og liđiđ bćtti áfram viđ forskotiđ. Á endanum vannst 11 marka stórsigur, 31-20, og sigurgleđin í KA-Heimilinu magnţrungin. Stemningin og gleđin var allsráđandi á međan leiknum stóđ og gaf ţađ strákunum án efa mikinn aukakraft.

Tímalína seinni hálfleiks

Hvernig liđiđ sló jafn sterkt liđ og Hauka útaf laginu hef ég varla séđ áđur og áttu strákarnir svör viđ öllu sem gestirnir reyndu. Jovan Kukobat var án nokkurs vafa mađur leiksins en hann varđi í kringum 25 skot ţar af 4 vítaköst, geri ađrir betur!

Áki Egilsnes fór fyrir markaskoruninni en hann gerđi 9 mörk en auk hans átti Jón Heiđar Sigurđsson stórleik á miđjunni og endađi hann međ 6 mörk rétt eins og Dagur Gautason sem var skeinuhćttur í hrađaupphlaupum.

Varnarlega var KA liđiđ algjörlega frábćrt og var hrein unun ađ fylgjast međ fćrslunni hjá mönnum, ţá sérstaklega Daníel Matthíassyni, Dađa Jónssyni og Heimi Erni Árnasyni í hjarta varnarinnar auk ţess sem ađ Dagur Gautason var svakalegur fremsti mađur.

Mörk KA: Áki Egilsnes 9 (2 úr vítum), Dagur Gautason 6, Jón Heiđar Sigurđsson 6, Allan Norđberg 3, Daníel Matthíasson 2, Tarik Kasumovic 2, Andri Snćr Stefánsson 1, Sigţór Árni Heimisson 1 og Sigţór Gunnar Jónsson 1 mark.
Í markinu var Jovan Kukobat međ 22 varin skot, ţar af 4 vítaköst. 

Mörk Hauka: Orri Freyr Ţorkelsson 5, Atli Már Báruson 4, Daníel Ţór Ingason 4, Halldór Ingi Jónasson 4, Ásgeir Örn Hallgrímsson 2 og Heimir Óli Heimisson 1 mark.
Grétar Ari Guđjónsson og Andri Sigmarsson vörđu samtals 12 skot í marki Hauka.

KA hefur ţví unniđ báđa leiki sína í deildinni til ţessa og er á toppi Olís deildarinnar međ 4 stig. Nćsti leikur er á laugardaginn og verđur ţađ fyrsti útileikurinn í vetur en ţá sćkja strákarnir Fram heim. Ţađ er ljóst ađ ţađ verđur gríđarlega mikilvćgur leikur en báđum liđum var spáđ fallbaráttu í vetur og ţví hćgt ađ líta á leikinn sem fjögurra stiga leik.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband