Stærsti leikur tímabilsins hjá KA/Þór í dag

Handbolti

Í kvöld klukkan 19:00 spila stelpurnar okkar í KA/Þór afar þýðingarmikinn bikarleik við Fjölni, með sigri tryggjum við okkur í Final four í Laugardagshöll, ef það tekst yrði það líklega í fyrsti skipti í sögunni hjá meistaraflokki KA/Þór.
Fjölnir situr á botninum í Olís deild kvenna með 4 stig. Þær töpuðu síðasta leik á móti Stjörnunni á heimavelli, 25-28. En eru komnar í 8 liða úrslit bikarsins eftir tíu marka sigur á Gróttu í 16 liða úrslitum.
Aftur á móti þá er KA/Þór í 2. sæti í Grill 66 deild kvenna en eiga leik til góða. KA/Þór vann síðasta leik með 20 marka mun, 39-19 á móti Fram U. En í 16 liða úrslitum bikarsins unnu þær FH í KA heimilinu, 37-23.
Liðið sem vinnur þennan leik fer í Laugardalshöllina í bikarúrslitahelgina.
Miðaverð er 1.000 kr. Athugið að ársmiðar gilda ekki.
Komið og styðjið KA/Þór til sigurs!
Áfram KA/Þór!

Athugið að þeir sem ekki komast á leikinn geta fylgst með útsendingu frá leiknum á KA-TV.
Smelltu hér til að fylgjast með útsendingunni.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband