Fer Þór/KA í bikarúrslitin?

Fótbolti
Fer Þór/KA í bikarúrslitin?
Nær Andrea Mist að skora aftur gegn ÍBV?

Kvennalið Þórs/KA leikur á morgun, laugardag, einn mikilvægasta leik sumarsins þegar liðið tekur á móti ÍBV í undanúrslitum Borgunarbikarsins. Leikurinn fer fram á Þórsvelli klukkan 12:30 og eiga stelpurnar svo sannarlega skilið að við fjölmennum á völlinn.

Liðin mættust á sama stað í Pepsi deildinni í vikunni þegar Þór/KA vann góðan 2-0 sigur sem hefði hæglega getað verið stærri. En Bikarkeppnin er allt önnur keppni og er ljóst að stelpurnar þurfa á öllum þeim stuðning sem í boði er ef sæti í úrslitaleiknum á að verða okkar, áfram Þór/KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband