Fjórir ungir og efnilegir skrifa undir hjá KA

Handbolti
Fjórir ungir og efnilegir skrifa undir hjá KA
Piltarnir fjórir ásamt Haddi

Þeir Sigurður Sveinn Jónsson, Kristján Garðarson, Elvar Reykjalín Helgason og Óli Birgir Birgisson skrifuðu í dag undir samning við KA um að leika með liðinu á næstu leiktíð.

Þetta eru allt ungir og efnilegir strákar sem eru fæddir 1997 nema Óli Birgir sem er fæddur árið 1998. Þrír af þeim hlutu eldskírn sína í 1. deildinni síðastliðin vetur með Akureyri U en Óli Birgir er að skrifa undir sinn fyrsta samning. 

Þeir koma allir upp úr yngriflokkastarfi KA og bindur KA miklar vonir við þessa efnilegu stráka sem munu koma til með að styrkja leikmannahópinn fyrir komandi vetur.

 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband