Guðmann Þórisson gerir tveggja ára samning við KA

Fótbolti

Þau gleðitíðindi bárust KA-mönnum nú rétt í þessu að Guðmann Þórisson hefði gert nýjan samning við KA sem gildir til næstu tveggja ára.

Guðmann lék með KA í sumar og var alger lykil leikmaður í velgengni liðsins í sumar. Hann spilaði í hjarta varnarinnar og KA fékk aðeins á sig 16 mörk í sumar í 22 leikjum og Guðmann bætti um betur og skoraði 2 mörk í sumar.

Guðmann er fæddur árið 1987 og leikur sem miðvörður. Hann er uppalinn hjá Breiðablik en fór út sem atvinnumaður til Noregs árið 2010. Hann sneri til baka til Íslands og gekk í raðir FH árið 2012. Þar lék hann til ársins 2014 þegar hann fór aftur út í atvinnumennskuna og lék í Svíþjóð, nánar tiltekið með Mjälby. Hann lék síðan með meistaraliði FH í fyrrasumar.

KA-menn fagna þessum tíðindum og hlakka til að sjá Guðmann með KA í deild þeirra bestu næsta sumar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband