Hinar sívinsælu KA-könnur komnar í sölu

Almennt

Hinar sívinsælu KA-könnur eru komnar til sölu og verður hægt að panta þær til 10. desember. Könnurnar verða síðan afhentar í KA-heimilinu fyrir jól.

Stykkið kostar 2000kr og eru þær merktar með KA-merki og nafni.

Hægt verður að panta könnurnar til 10. desember og greiða verður fyrir þær um leið og þær eru pantaðar. Hægt er að panta hjá Siguróla í gegnum tölvupóst (siguroli@ka.is), með því að hringja í 692-6646, 462-3482 eða einfaldlega með því að koma upp í KA-heimili.

Ef óskað er eftir því að greiða með því að leggja inná reikning er reikningsnúmer 0162-26-11888 kt. 571005-0180. Nafn kaupanda verður að koma í skýringu.

Einnig verður hægt að greiða með peningum upp í KA-heimili.

Það sem þarf að koma fram í pöntun er: Hver pantar, símanúmer þess sem pantar, hvaða nafn á að vera á könnunni. Auðvitað er hægt að panta fleiri en eina könnu og með mismunandi nöfnum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband