Hulda Bryndís til liðs við KA/Þór

Handbolti
Hulda Bryndís til liðs við KA/Þór
Hulda og Haddur handsala samninginn góða

Kvennaliði KA/Þórs í handboltanum hefur borist mikill liðsstyrkur en Hulda Bryndís Tryggvadóttir skrifaði í dag undir samning við liðið. Hulda er okkur vel kunnug enda er hún uppalin hjá félaginu og lék síðast með liðinu tímabilið 2015-2016.

Lið KA/Þórs var mjög nálægt því að tryggja sér sæti í deild þeirra bestu á síðasta tímabili en liðið endaði í 2. sæti í 1. deildinni og tapaði svo í úrslitum umspilsins gegn Selfyssingum. Hulda lék á síðustu leiktíð með HK sem lék einnig í 1. deildinni.

Við bjóðum Huldu velkomna í hópinn og bíðum spennt eftir að handboltatímabilið hefjist. Fyrsti leikur stelpnanna verður 23. september þegar Valskonur koma í heimsókn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband