KA komið í bikarúrslitaleikinn í blaki

Blak

Deildarmeistarar KA í blaki tryggðu sér áðan sæti í úrslitaleik Kjörísbikarsins með öruggum 3-0 sigri á Hrunamönnum. Það var aldrei spurning hvernig leikurinn endaði en KA hafði algjöra yfirburði í öllum hrinum sem enduðu 9-25, 3-25 og 8-25.

Úrslitaleikurinn fer fram á morgun, sunnudag klukkan 15:30 í Digranesi. Við hvetjum alla sem geta til að mæta og styðja strákana til sigurs. Fyrir þá sem ekki komast verður leikurinn í beinni útsendingu á RÚV, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband