KA leitar eftir þjálfara fyrir 2. flokk karla

Almennt
KA leitar eftir metnaðarfullum þjálfara fyrir 2. flokk karla.

Yngriflokkaráð KA auglýsir stöðu þjálfara 2. flokk karla lausa til umsóknar. 
Leitað er eftir jákvæðum og metnaðarfullum einstakling með ástríðu fyrir knattspyrnuþjálfun. 
 
Viðkomandi þarf að hafa lokið UEFA B þjálfaragráðu og reynsla af þjálfun er skilyrði.
Hjá KA er unnið metnaðarfullt starf hjá yngriflokkum og meistaraflokki, en þjálfari 2. flokk starfar náið með meistaraflokki.
 
Umsóknir skulu sendast fyrir 3. október n.k. á Aðalbjörn Hannesson, yfirþjálfara yngriflokka KA, á netfangið alli@ka.is
 
Í umsókn þarf að koma fram menntun, reynsla og annað sem umsækjandi telur mikilvægt að komi fram.
 
Frekari upplýsingar veitir Bergvin Fannar Gunnarsson formaður yngriflokka KA, bergvin@stefna.is.

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband