KA/Þór með heimaleik gegn Val í dag, föstudag

Handbolti

Stelpurnar í KA/Þór taka á móti stórliði Vals í dag klukkan 18:30. Leikurinn verður í KA heimilinu en stelpurnar voru hársbreidd frá því að taka stig í síðasta heimaleik þegar þær töpuðu með einu marki fyrir Fylki.

Stelpurnar hafa orðið fyrir miklum skakkaföllum í upphafi tímabilsins. En þrír af byrjunarliðsmenn hafa orðið fyrir alvarlegum meiðslum og eru ekki leikhæfir.

Ársmiðasala liðsins er komin á fullt og verður hægt að kaupa miða á litlar 6000 krónur á alla deildarleiki liðsins í vetur. Innifalið er hálfleikskaffi að venju!

Við hvetjum alla áhugamenn til að mæta og styðja stelpurnar í erfiðri baráttu, það er frítt á leikinn sem hefst klukkan 18:30 eins og áður segir.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband