KA vann fyrsta leikinn og leiđir 1-0

Handbolti

KA vann fyrsta leikinn í viđureign sinni gegn HK um laust sćti í Olís deildinni ţegar liđin mćttust í KA-Heimilinu í dag. Leikurinn var jafn og spennandi en KA hafđi frumkvćđiđ mestallan leikinn og vann á endanum 24-20 sigur og leiđir ţví einvígiđ 1-0. Vinna ţarf ţrjá leiki til ađ komast í deild ţeirra bestu.

Ţađ var ekki ađ sjá ađ KA liđiđ hefđi ekki spilađ keppnisleik í ađ verđa mánuđ ţví menn mćttu vel stemmdir til leiks og KA leiddi á upphafsmínútum leiksins. HK liđiđ er ţó nýbúiđ ađ slá út Ţrótt í umspilinu og voru ţeir aldrei langt undan.

Ţegar fyrri hálfleikur var hálfnađur tókst gestunum ađ sveifla leiknum og náđu á tímabili tveggja marka forystu. Ţá small KA vörnin aftur í gír og lokakaflinn í fyrri hálfleik var gulur. Hálfleikstölur voru 12-10 fyrir KA og ljóst ađ sama spenna yrđi áfram í síđari hálfleiknum.

Tímalína fyrri hálfleiks

Flott spilamennska KA liđsins hélt áfram í upphafi síđari hálfleiks og náđi liđiđ fljótlega fjögurra marka forystu sem gestunum gekk illa ađ brúa. Í stöđunni 21-17 fyrir KA gekk liđunum ansi erfiđlega ađ skora og liđu tćplega 10 mínútur áđur en gestirnir komust aftur á bragđiđ og minnkuđu í kjölfariđ muninn í 21-19.


Áki Egilsnes fór á kostum í leiknum og skorađi 10 mörk.
Smelltu á myndina til ađ sjá fjölmargar myndir Hannesar Péturssonar frá leiknum.

En ţađ býr mikill karakter í KA liđinu auk ţess sem ađ stemningin í KA-Heimilinu var góđ og ţađ fór svo ađ KA sigldi inn góđum 24-20 sigri og varđi ţar međ heimaleikjaréttinn sem liđiđ hefur í einvíginu.

Tímalína seinni hálfleiks

Mörk KA: Áki Egilsnes 10, Sigţór Árni Heimisson 4, Jón Heiđar Sigurđsson 3, Dađi Jónsson 2 , Sigţór Gunnar Jónsson 2, Andri Snćr Stefánsson 1, Heimir Örn Árnason 1 og Ólafur Jóhann Magnússon 1 mark.
Í markinu varđi Jovan Kukobat 14 skot, Svavar Ingi Sigmundsson kom inná og reyndi viđ eitt vítakast.

Mörk HK: Kristján Ottó Hjálmsson 6, Svavar Kári Grétarsson 4, Elías Björgvin Sigurđsson 3, Ingi Rafn Róbertsson 3, Bjarki Finnbogason 2, Friđgeir Elí Jónasson 1 og Pálmi Fannar Sigurđsson 1.
Markverđir HK vörđu samtals 12 skot.

Tölfrćđi leiksins

Ađ sjálfsögđu var leikurinn í beinni útsendingu á KA-TV og hćgt ađ horfa á leikinn í spilaranum hér ađ neđan.

Nćsti leikur er á ţriđjudaginn klukkan 19:30 í Digranesi og verđur KA-TV međ leikinn í beinni fyrir ţá sem ekki komast í Kópavoginn. Ţađ er ljóst ađ ţetta einvígi verđur stál í stál og ţađ má áfram búast viđ hörkuslag í nćstu leikjum liđanna.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband