Leikur dagsins í beinni útsendingu á Akureyri TV

Handbolti

Í dag er komið að bikarúrslitaleik yngra árs í 4. flokki karla þar sem mótherjarnir eru Akureyrarliðin KA og Þór. Að öllu jöfnu fara allir bikarúrslitaleikir yngri flokka fram í Laugardalshöllinni þennan dag en í ljósi þessa sögulegu tíðinda ákvað HSÍ að leikurinn færi fram hér fyrir norðan en eftir því sem best er vitað er þetta í fyrsta sinn sem bikarúrslitaleikur í handknattleik fer fram hér á Akureyri.

Leikurinn sjálfur hefst klukkan 14:00 og fer fram í Íþróttahöllinni en húsið verður opnað klukkan 13:00. Við hvetjum alla til að fjölmenna í Höllina og taka þátt í gleðinni enda frítt inn á leikinn.
Leikmenn meistaraflokks Akureyrar Handboltafélags verða með kaffiveitingar í hálfleik.
Leikurinn verður sýndur beint á Akureyri TV þannig að enginn ætti að missa af þessum tímamótaviðburði.

SMELLTU HÉR TIL AÐ HORFA Á LEIKINN!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband