Lengjubikarinn: Úrslitaleikur Þór/KA og Stjörnunnar

Fótbolti

Íslandsmeistarar Þórs/KA taka á móti Stjörnunni í úrslitaleik Lengjubikarsins í Boganum á þriðjudaginn klukkan 17:15. Stelpurnar eru í mjög flottum gír nú þegar styttist í að Pepsi deildin hefjist og hvetjum við alla sem geta til að mæta í Bogann og styðja stelpurnar til sigurs enda Lengjubikarinn í húfi.

Þór/KA hefur einu sinni áður hampað Lengjubikarnum en það var árið 2009 og þá mætti liðið einnig Stjörnunni í úrslitaleik. Björk Gunnarsdóttir kom Stjörnunni í 1-0 í fyrri hálfleik, Mateja Zver jafnaði snemma í síðari hálfleiknum. Inga Birna Friðjónsdóttir kom Stjörnunni aftur yfir er kortér lifði leiks en Mateja Zver og Rakel Hönnudóttir skoruðu undir lokin og tryggðu titilinn.

Það er svo einnig stutt í annan stórleik hjá stelpunum en sunnudaginn 29. apríl taka þær á móti Bikarmeisturum ÍBV í Meistarar Meistaranna. Sá leikur fer fram á KA-velli.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband