Mikið blak í vikunni

Blak
Mikið blak í vikunni
Karlalið KA vann tvo leiki um helgina

Um síðastliðna helgi mætti karlaliðið okkar Stjörnunni í tvígang. Leikirnir voru gífurlega mikilvægir fyrir liðið þar sem þeir eru í harðri baráttu við HK um deildarmeistaratitilinn.

Leikirnir unnust báðir, 3-0 og 3-1 og er KA með 6 stiga forskot á HK í efsta sætinu fyrir síðustu leiki tímabilsins. Þeir eru um næstu helgi, einmitt gegn HK og hvetjum við alla til að mæta og hvetja okkar menn til sigurs.

Kvennaliðið okkar mætti Völsungi á heimavelli í kvöld. Sá leikur tapaðist 3-0 en þrátt fyrir það sýndu þær flotta takta. Nýr leikmaður steig sín fyrstu skref með KA, hin brasilíska Amanda Caroline Martins og verður gaman að fylgjast með þeim öllum nú þegar fer að síga á síðari hluta tímabilsins.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband