Opna Norđlenska handboltamótiđ hefst í dag!

Handbolti

Ţađ má međ sanni segja ađ handboltavertíđin hér Norđanlands byrji í dag. Ţađ er áralöng hefđ fyrir ćfingamóti hér á Akureyri til ađ ţjálfarar og leikmenn fái tćkifćri til ađ leggja lokahönd á undirbúning liđanna áđur en alvaran byrjar fyrir alvöru.

Eins og kynnt var í vor ţá hefur Akureyri fengiđ til liđs viđ sig tvćr öflugar skyttur, ţá Karolis Stropus og Mindaugas Dumcius sem báđir eru landsliđsmenn frá Litháen, og ekki laust viđ ađ stuđningsmenn séu forvitnir ađ sjá ţá leika listir sínar í mótinu.

Auk Akureyrar mćta FH, Grótta og HK til leiks og verđur ekki síđur fróđlegt ađ sjá hvernig ţau liđ standa á ţessum tímapunkti.  FH er nýkrýndur sigurvegari Reykjavíkurmótsins ţannig ađ ţeir eru klárlega búnir ađ handleika boltann upp á síđkastiđ.

Mótiđ stendur yfir í ţrjá daga og hefst međ stórleik Akureyrar og FH fimmtudaginn 25. ágúst klukkan 19:00.  Annars er dagskrá mótsins sem hér segir:

Fimmtudaginn 25. ágúst klukkan 19:00  Akureyri - FH
Fimmtudaginn 25. ágúst klukkan 20:30  Grótta - HK 

Föstudaginn 26. ágúst klukkan 18:00  FH - Grótta
Föstudaginn 26. ágúst klukkan 19:30  HK - Akureyri

Laugardaginn 27. ágúst klukkan 10:00  FH - HK
Laugardaginn 27. ágúst klukkan 11:30  Akureyri - Grótta

Allir leikir mótsins verđa í KA heimilinu. Viđ hvetjum alla handboltaunnendur til ađ kíkja viđ og rifja upp leikinn. Frítt er inn á mótiđ fyrir 15 ára og yngri en 16 ára og eldri greiđa 1.500 krónur og gildir sá miđi alla sex leiki mótsins.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband