Rakel og Andrea í milliriðil EM U19

Fótbolti
Rakel og Andrea í milliriðil EM U19
Rakel og Andrea fyrirliði U19.

Anna Rakel og Andrea Mist spiluðu alla leiki U19 ára liðs Ísland þegar þær tryggðu sig áfram í milliriðil EM.

Anna Rakel gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í 10-0 sigri Íslands á Kasakstan. Andrea Mist var einnig á skotskónnum en hún skoraði eitt mark í 5-0 sigri á Færeyjum. Síðasti leikur liðsins var gegn Finnlandi þar sem þær biðu lægri hlut 3-0. Það kom þó ekki að sök þar sem annað sætið gaf þeim keppnisrétt í milliriðli EM sem verður leikinn á næsta ári.

Við óskum þeim og samherjum þeirra til hamingju með þennan árangur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband