Síðasti heimaleikur Þór/KA

Almennt

Á laugardaginn kl. 16:00 leikur Þór/KA gegn Fylki á Þórsvelli. 

Þegar tvær umferðir eru eftir eru okkar stúlkur í 4. sæti með 29 stig en Fylkir í fallbaráttu með 13 stig. Það má því búast við hörkuleik enda hvert stig mjög dýrmætt fyrir gestina. 

Á sunnudaginn er annar stórleikur en þá mæta stelpurnar úr 2. fl liðið Breiðabliks í undanúrslitum bikarkeppni KSÍ. Sá leikur fer fram kl 12:00 á Þórsvelli. 

Það mun enginn sjá eftir því að kíkja á völlinn hjá stelpunum okkar enda ætla þær að enda tímabilið með stæl!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband