Súrt tap gegn Völsungi á Húsavík

Blak
Súrt tap gegn Völsungi á Húsavík
Konurnar töpuðu fyrir Völsungi í kvöld

Fyrirfram var búist við spennandi rimmu þar sem liðin voru jöfn Þrótti Reykjavík í 5.-7. sæti deildarinnar og sú varð raunin.

Leikurinn var nokkuð sveiflukenndur og sést það helst á því að liðin skiptust á að vinna hrinurnar. Fyrstu hrinunni lauk með 21-25 sigri Völsungs, þeirri annarri með 25-16 sigri KA, þriðju með 19-25 sigri Völsungs, þeirri fjórðu með 25-19 sigri KA og oddahrina því raunin. Oddahrinan hefði ekki getað tapast naumar og lauk henni ekki fyrr en eftir upphækkun, 15-17 og 2-3 tap því raunin.

KA fer því í jólafrí í 6. sæti deildarinnar með 6 stig eftir 9 leiki. Völsungur er einu stigi á undan eftir 8 leiki og Þróttur Reykjavík vermir botninn með einu færri stig en KA eftir jafn marga leiki.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband