Þór/KA sækir Selfyssinga heim

Fótbolti
Þór/KA sækir Selfyssinga heim
Stelpurnar ætla sér sigur í dag (mynd: Þ.Tr)

Pepsi deild kvenna fer aftur af stað eftir landsleikjahlé og sækja Íslandsmeistarar Þórs/KA lið Selfoss heim í dag klukkan 18:00. Alls voru þrír leikmenn úr Þór/KA í landsliðshópnum sem undirbjó sig fyrir hinn góða 2-0 sigur á Slóveníu en það voru þær Sandra María Jessen, Arna Sif Ásgrímsdóttir og Anna Rakel Pétursdóttir.

Staða liðanna í deildinni er ólík en okkar stelpur eru á toppi deildarinnar með fullt hús stiga en heimastúlkur eru með 4 stig í 6. sætinu. Hinsvegar þá tapaðist síðasti leikur fyrir landsleikjahlé en það var bikarslagur gegn Stjörnunni, leikurinn í dag er því mjög mikilvægur til að koma sér aftur í gang og sjá til þess að liðið sé enn á toppnum fyrir næsta leik sem er toppslagur gegn Breiðablik sem er einnig með fullt hús stiga.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband