Flýtilyklar
Þorvaldur Þorvaldsson áfram með KA/Þór
22.04.2018
Handbolti
Þorvaldur Þorvaldsson hefur gert nýjan samning við meistaraflokksráð KA/Þórs í handboltanum og verður því áfram aðstoðarþjálfari liðsins. Á dögunum var einnig gerður nýr samningur við Jónatan Magnússon og því ljóst að þjálfarateymið heldur áfram óbreytt.
Þetta eru frábærar fréttir enda hafa þeir Jónatan og Þorvaldur verið að gera mjög flotta hluti í kvennastarfinu og verður áhugavert að sjá hvernig liðið plumar sig í deild þeirra bestu en þar leikur einmitt liðið eftir frábæran sigur í Grill 66 deildinni í vetur.