Toppslagurinn í beinni á morgun

Handbolti
Toppslagurinn í beinni á morgun
Heldur hin fullkomna byrjun KA áfram?

KA er á toppi Grill 66 deildarinnar í handboltanum með fullt hús stiga eftir fyrstu 7 umferðirnar. Næsti leikur eru hinsvegar ansi mikilvægur en þá sækir liðið HK heim en HK er í 2. sæti deildarinnar og hefur aðeins tapað einum leik.

Það er ljóst að um erfiðan leik verður að ræða en með tapi mun HK jafna okkur að stigum auk þess að Akureyri getur einnig náð okkur á toppnum. Sigur myndi hinsvegar tryggja 4 stiga forskot á HK sem gæti reynst mikilvægt þegar líður á mótið.

Leikurinn fer fram í Digranesi á morgun, föstudag, klukkan 19:00 og hvetjum við alla sem geta til að mæta og styðja strákana til sigurs. KA-TV verður hinsvegar á staðnum og sýnir leikinn beint þannig að það er engin ástæða til að örvænta ef þú kemst ekki í Digranesið. Smelltu hér til að fylgjast með útsendingunni frá leiknum. Ekki missa af þessum stórleik og áfram KA!

 FÉLAGLSJTMÖRKNETTSTIG
1 KA 7 7 0 0 179 44 14
2 HK 7 6 0 1 218 42 12
3 Akureyri 6 5 0 1 147 18 10
4 Þróttur 7 4 0 3 175 11 8
5 Haukar U 7 3 1 3 179 -1 7
6 Valur U 6 2 0 4 157 6 4
7 ÍBV U 6 2 0 4 165 -28 4
8 Stjarnan U 6 2 0 4 143 -25 4
9 Mílan 7 1 1 5 159 -19 3
10 Hvíti Riddarinn 7 0 0 7 176 -48 0

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband