Úthlutun KEA úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

Almennt
Úthlutun KEA úr Menningar- og viðurkenningarsjóði
Valþór Ingi, Arnrún Eik og Ævarr Freyr

S.l. fimmtudag úthlutaði KEA úr Menningar- og viðurkenningarsjóði til ýmissa verkefna. Þrír blakarar hlutu styrk í flokknum ungir afreksmenn, Valþór Ingi Karlsson, Arnrún Eik Guðmundsdóttir og Ævarr Freyr Birgisson. Þetta er mikil viðurkenning fyrir þá og þeirra ástundun og árangur. Þá er þetta ekki síður viðurkenning á starfi Blakdeildar KA sem á undanförnum árum hefur skapað marga landsliðmenn og konur. Svona styrkir eru samfélaginu dýrmætir. Til hamingu krakkar og takk fyrir KEA.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband