90 ára afmæli KA 13. janúar

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Júdó | Blak | Tennis og badminton
90 ára afmæli KA 13. janúar
2018 er merkisár hjá okkur KA mönnum!

90 ára afmæli KA verður haldið með pompi og prakt í KA-Heimilinu þann 13. janúar næstkomandi. Það er ljóst að þetta verður veisla sem enginn tengdur félaginu vill missa af. Glæsileg veislumáltíð frá Bautanum verður á boðstólum og þá munu Páll Óskar, Eyþór Ingi, Hamrabandið, Vandræðaskáld, Siggi Gunnars og fleiri halda uppi stuðinu!

Miðasalan er í fullum gangi í KA-heimilinu eða í gegnum netfang hjá Siguróla (siguroli@ka.is) og Gunna Nella (gunninella@outlook.com). Ekki hika við að bóka miða á þessa mögnuðu skemmtun, hlökkum til að sjá ykkur á þessum merku tímamótum, áfram KA!

Þá bendum við á að Hótel KEA býður KA mönnum upp á tilboð um afmælishelgina 12.-14. janúar. Eins manns herbergi á 12.900 kr. og tveggja manna herbergi á 16.100 kr. og er morgunverður innifalinn. Nefnið 90 ára afmæli KA við pöntun.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is