Föstudagsframsagan fer aftur af stað!

Blak

Föstudagsframsagan fer aftur af stað á föstudaginn þegar Miguel Mateo Castrillo og Filip Pawel Szewczyk kynna starf blakdeildar KA. Vídalín veitingar verða með gómsætar kótilettur ásamt meðlæti á aðeins 2.200 krónur.

Maturinn hefst kl. 12:00 en áætlað er að kynning þeirra félaga hefjist kl. 12:15 og taki um hálftíma. Þetta framtak sló í gegn í fyrra og er um að gera að mæta í KA-Heimilið og njóta!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is